Ræktunin

Ixilandia – Border Terrier

Ég heiti Jónína Sif Eyþórsdóttir, ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á hundum og hundarækt. Ég eignaðist fyrst hund þegar ég var 10 ára gömlu, það var terrier blendingur sem hét María. Áður hafði ég umgengist hunda systur minnar en hún hefur átt og ræktað hunda í nokkur ár.

Áhugi minn á hundaþjálfun og sýningum jókst svo með árunum og kom að því að ég vildi fá mér hund sem ég gæti líka sýnt. Eftir að hafa ætlað að fá mér Schafer og ekkert annað en Schafer endaði ég með yndislega Border Terrier tík sem fékk nafnið Rökkurdís. Við höfum átt margar ógleymanlegar stundir saman. Hún er frábær karakter og algjör drauma hundur. Sumarið 2007 dvaldist ég í Svíþjóð og vann þar hjá Border terrier hundaræktanda og fékk þar kjörið tækifæri til að kynnst tegundinni betur og fékk svo í lok sumars að vita að ég ætti að fá að eiga Sub Terram Dream In Color ,,Wilma” og ég verð Ulriku og Roger Berge ævinlega þakklát fyrir það. Sjá: Subterram.com Wilma kom svo til landsins haustið 2008 henni hefur gengið mjög vel á sýningum. Hún er heljarinnar karakter og afskaplega mannelsk.

Fyrsta gotið hjá Ixilandia ræktun var undan Rökkurdís og NordJ(g)CH SVCH Ajax z Tyeolské Obory en hann er innfluttur frá Svíþjóð en er upphaflega frá Tékklandi. Það fæddust 5 hvolpar, 3 rakkar og 2 tíkur í janúar 2009.

Markmið mitt er ávallt að reyna að bæta tegundina og rækta heilbirgða, skapgóða og skemmtilega hunda. Svo þeir sem fái hund hjá mér muni eignast félaga í sínum hundum eins og ég hef átt í mínum.

Ásamt því að vera með got einstaka sinnum rek ég hestaleigu www.reidtur.is

Ræktunarnafnið Ixilandia er eitt af þeim nöfnum sem að kortagerðarmenn á miðöldum notuðu yfir Ísland og aðrar eyjur í norður Atlantshafi en þá var oft ekki mikilli landafræði þekkingu fyrir að fara heldur voru kortagerðirnar meiri listgrein en vísindi.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *