Já nú er sýningin er að baki og hún gekk rosalega vel! Bæði laugardag og sunnudag var Ixilandia Fljúgðu Fálki besti hvolpur tegundar og Ixilandia Kallaðu Kría annar besti hvolpur. Allir hvolparnir fengu heiðursverðlaun. Ixilandia Jón Oddur varð best rakki tegundar á laugardeginum og fékk íslenskt meistarastig og Reykjavik Winner 2014 titilinn. Ixilandi Hrafnkatla/Pálína varð Besti Hundur tegundar á laugardeginum og fékk íslenskt meistarastig og Reykjavik Winner 2014. Auk þess sem hún gerði sér lítið fyrir og vann tegundarhóp 3 aðeins 14. mánaða!
Rökkurdís varð önnur besta tíkin á laugardeginum og fór svo keppti um að vera besti öldungur sýningar. Hún sýndi sig ótrúlega vel og varð Besti Öldungur Sýningar!
Rán varð 4. besta tík með meistaraefni.
Á Sunnudeginum, var Jón Oddur ekki sýndur. Rökkurdís varð Besti Hundur tegundar. Rán varð önnur besta tíkin fékk Íslenskt- og Alþjóðlegtmeistarastig! Pálína varð þriðja besta tík tegundar. Rökkurdís fór í keppnina um besta hund í tegundarhópi 3 og varð önnur, sem er glæsilegur árangur hjá 9. ára gömlum hundi.
Dómararnir Malgorzata Supronowicz (lau) and Henrik Johansson (sun) voru mjög hrifin af hópnum mínum og höfðu bæði orð á því hvað Fálki væri ótrúlega vel gerður. Allir hundarnir fengu frábæra dóma.
Rökkurdís Besti Öldungur Sýningar!