Viku gamlir

Þá eru hvolparnir orðnir viku gamlir. Þeir eru vel sprækir og kröftugir og Rán sinnir þeim ótrúlega vel. Hún víkur varla frá þeim og oftar en ekki er erfitt að fá hana til að koma út.

Nú bíðum við bara spennt eftir því að þeir fari að opna augun.

Annars er rétt að benda þeim sem gleymdu að skrá á sýninguna að skráningafrestur hefur verið framlengdur til kl 15:00 á morgun mánudag.

20140126-151003.jpg

Hvolpar fæddir

Rán fór að mása og blása aðfara nótt laugardagsins 18. jan. Um klukkan 16.30 fór að bera á smá rembingi og kl 18 fór vatnið. Stuttu seinna kom fyrsti hvolpurinn í heiminn, lítill og nettur rakki. Síðan komu þeir hver af öðrum, samtals fimm hvolpar, þrír rakkar og tvær tíkur á einni klukkustund og fimmtán mínútum.

Hvolparnir voru strax mjög sprækir og fóru sjálfir á spena. Rán fór strax að sinna þeim líkt og hún hefði aldrei gert annað. Algjör fyrirmyndar mamma.

Nú þegar hafa einhverjar fyrirspurnir borist vegna gotsins, en þeir sem hafa áhuga á að bæta einum yndislegum Border Terrier í fjölskylduna geta haft samband við mig í gegnum joninasif hja gmail.com.

Hér eru svo myndir af krílunum.

Rán og hvolparnir

Bosse 7. stigahæsti hundur ársins

bosse nov

Já það er orðið nokkuð langt um liðið síðan að síðasta sýning fór fram, helgina 16. – 17. nóvember og því ekki seinn vænna að henda inn smá monti.

Pálína varð aftur besti hvolpur tegundar. Hún stóð sig virkilega vel í sýningarhringnum og við vorum örlítið svekktar að fá ekki sæti í Besti hvolpur sýningar, að þessu sinni því hún er jú svo afskaplega fín.

Rán kom sá og sigraði ef svo má að orðið komast. Við höfum verið í smá vandræðum með að fá hana til að sýna sig á sýningunum – henni finnst ekkert alltof gaman að labba í hringi og vera sæt. Hún vill frekar fara út og leika sér og vesenast eitthvað. En á þessari sýningu sýndi hún allt og var ótrúlega falleg og flott. Hún endaði sem besta tík tegundar með Íslenskt og alþjóðlegt meistarastig. Þá fékk hún frábæran dóm og tapaði naumlega fyrir pabba sínum – honum Bosse í keppninni um besta hund tegundar.

En Bosse mætti á svæðið í frábæru formi og var algjörlega til fyrirmyndar. Hann varð besti rakkinn og besti hundur tegundar og fékk sitt 5. alþjóðlega meistarastig! Hann gerði svo gott um betur og varð aftur besti hundur í tegundarhópi 3.

Með þessu lauk sýningarferli hans hér á Íslandi, en eftir árið reiknast hann sem 7. stigahæsti hundurinn af öllum tegundum innan HRFÍ auk þess að vera stigahæsti Terrierinn. Ekki leiðinlegt það.

palina

Pálína BIShv og Bosse BIG!

Image

Vá þvílíkur dagur á hundasýningunni á enda. Við hófum leik snemma í morgun þar sem 4 hvolpar undan Bosse voru sýndir. Pálína stóð sig ótrúega vel og gerði allt eins og hún átti að gera og ekki að sjá að hún hafi verið á sinni fystu sýningu. Hún vann systkini sín og varð besti hvolpur tegundar. Í lok dags keppti hún í keppninni um  besta hvolp dagsins og gerði sér lítið fyrir og vann þá keppni. Dómarinn sem dæmi tegundina, Hans van de Berg var ákaflega ánægður með hana og skrifaði meira að segja í dóminn ,,I like her a lot” auk þess að hrósa því hversu vel þjálfuð hún væri. Dómurinn hennar var í heildina frábær! Dómarinn sem dæmdi Besta hvolp dagsins var einnig mjög ánægð með hana og hrósaði henni mikið! Björt framtíð í vændum hjá Pálínu!

Næstur inn í hringinn á eftir Pálínu var Marteinn (Ixilandia Amigo Lucky Day). Hann var sýndur af Sólrún sem er fóðureigandi Ránar. Þau stóðu sig ákaflega vel og voru flott saman í hringnum. Hann fékk Very Good og góða umsögn.

Því næst var komið að Bosse (Sub Terram Apple Jack), hann átti eitt stig eftir til þess að verða Alþjóðlegur meistari og því var mikil spenna í loftinu. Hann ákvað að sýna sína bestu hlið og heillaði dómarann alveg upp úr skónum! Hann endaði sem besti rakki tegundar og fékk sitt síðasta alþjóðlega stig og er því nú kominn með nýjan titil í safnið CIB! Síðar keppti hann við bestu tík tegundar, hann sló ekkert af og var í miklu stuði og vann tegundina með stæl. Dómarinn gaf sér langa stund til að spjalla um Bosse og Pálínu en hann hreyfst mjög af þeim tveim.

Á eftir Bosse kom Rán, sem var algjörlega feldlaus að þessu sinni og setti dómarinn út á það, hann sagðist vilja hafa hana í sýninarástandi og gaf henni því very good, en flottan og lofandi dóm. Næst kom feitabollan okkar hún Táta, Honum leist ekkert á hana, fannst hún alltof feit. Það kemur að því að hún verður sýnd í sínu rétta ástandi. En dómurinn var þó góður, enda fallegur hundur undir öllu þessu spiki 😉

En dagurinn var allt í allt æðislegur enda fátt sem toppar að eiga besta hvolpinn og vinna grúbbuna. Ég er líka afskaplega ánægð með það hversu vel þau sýndu sig (eins og sjá má á næstu mynd).

Image

Næsta sýning fer fram helgina 16. -17. Nóvember. Þeir sem vilja taka þátt í þeirri sýningu ættu að snyrta hundna eigi síðar en 20 sept. Þeir sem vilja frekari upplýsingar um sýningarnar, þjálfun eða reytingu er velkomið að hafa samband!

Sýning um helgina

Um helgina verður haldin alþjóðleg hundasýning á vegum HRFÍ.  Sýningin fer fram að Klettagörðum 6. Þeir sem hafa áhuga á að koma og kíkja á Border terrierinn ættu að vera mættir á sýningarsvæðið rétt rúmlega 9 á sunnudagsmorgun, en dómur á að hefjast klukkan 9:44 en tímasetningin er aldrei alveg örugg.

Dagskrá sýningarinnar er aðgengileg hér!

Endilega látið sjá ykkur!

ImagePálína mun mæta á sýna fyrstu sýningu!

Styttist í sýningu

Já kæru vinir það styttist í sýningu.  Þeir sem ætla að taka þátt þurfa að skrá sig fyrir 9. ágúst. Það er um að gera að vera með. Þeir sem að skrá og vilja fá leiðsögn um hvernig skal sýna hundinn, eða vilja fá hjálp við að finna sýnanda geta haft samband við mig.

Hér með fylgjandi eru myndir af Rökkurdís, Bosse og Pálínu sem tekin var um helgina:

aDSC_0237 aDSC_0268

Bosse BIG 2

Um helgina fór fram sumar sýning HRFÍ og voru 8 Border Terrier hundar skráðir til leiks á sunnudeginum, 4 rakkar og 4 tíkur. Á meðal skráðra hunda voru Bosse, Ixilandia Jón Oddur og Bjarkar Rán í minni eigu auk þeirra Ixilandia Amigo Lucky Day/ Marteinn og Ixilandia Chasing My Tail/ Táta úr minni ræktun.

Jón Oddur var fyrstur inn í hring og sýndi sig afar vel. Dómaranum Per Kr. Andersen leist ákaflega vel á hann og fannst hann samsvara sér ótrúlega vel miðað við aldur (14 mánaða) og bera stærð sína vel. Hann fékk excellent og vann ungliðaflokkinn. En með honum í flokki var Bjarkar Rökkvi sem fékk einkunina Very Good.

Marteinn var eini rakkinn í Opnum keppnisflokki, hann var að mæta í fyrsta sinn á sýningu og þurfti mikið að skoða umhverfið. Dómaranum leist einnig mjög vel á hann, fannst hann þó þurfa að grennast örlítið og sýna sig betur í hringnum. Hann fékk einkunina Very Good. En mjög lofandi dóm og það verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni.

Bosse var eini rakkinn í Meistaraflokki. Hann var í miklu sýningarstuði og hefur aldrei sýnt sig eins vel. Hann átti hringinn og rúmlega það og gerði allt sem ætlast var til af honum. Dómarinn var virkilega hrifinn af honum og fannst hann vera af fullkomni stærð, með einstakt geðslag og fallega byggingu. Bosse fékk að sjálfsögðu excellent og varð besti rakki tegundar.

Næst inní hring var Rán, sem átti einnig góðan dag. En hingað til hefur henni fundist sýningarhringurinn leiðinlegur staður en núna ákvað hún að sýna sig. Dómarnum fannst hún virkilega falleg og fíngerð, enda varla annað hægt. Hún fékk flotta umsögn og excellent. Auk þess að vinna keppnisflokkinn, en með henni í hringnum var systir hennar Bjarkar Reyndís sem fékk einkunina Good.

Táta fylgdi næst á eftir, en hún var að mæta á sína fyrstu sýningu síðan hún var hvolpur. Hún hefur bætt á sig þó nokkuð mörgum kílóum og dómarnum fannst nú nóg um, svo hún er á leiðinni í átak fyrir næstu sýningu. Þá var dómarinn heldur ekki sáttur með að feldurinn hennar hefur verið rakaður, í stað þess að vera snyrtur og gaf hann henni þess vegna einkunina Good. En sagði sjálfur að hún væri mjög lofandi og gaf henni flottan dóm og sagðist vonast til að sjá hana í hringnum seinna í flottu formi.

Að lokum fór fram keppni um besta hund tegundar og keppti Bosse þar við Heklu/Eyju sem vann tíkurnar. Bosse sýndi sig vel og dómarinn var ekki lengi að ákveða sig hvort þeirra fengi 1. sætið, en það kom í hlut Bosse! Hann hefur því fengið nýjan titil RW-13 sem stendur fyrir Reykjavík Winner  2013, en þessi sýning var svokölluð Winner sýning sem verður haldinn árlega.

Seinna á sunnudeginum fóru úrslitin svo fram þar sem Bosse keppti við aðra hunda í tegundarhópi 3. Hann hélt áfram umteknum hætti og sýndi sig ákaflega vel og naut sín greinilega á rauða dreglinum. Hann endaði að lokum sem annar besti hundur í tegundarhópi 3. Það voru því þreyttir en sælir hundar og menn sem komu heim af þessari sýningu.

Næstu sýningar er þó beðið með óþreyju þrátt fyrir að enn sé langt í hana en þar munu hvolparnir undan Rökkurdís og Bosse geta keppt, auk þess sem Bosse hefur tækifæri á að keppa um siðasta alþjóðlega meistarastigið sem hann þarf til að verða alþjóðlegur meistari.

bossebig2

Við Bosse ágætlega sátt með annað sætið!

Þá er rétt á að benda á að þeir sem ætla að taka þátt í næstu sýningu ættu að reyta hundana niður um miðjan júlí. Þá eru einnig komnar nýjar myndir á síðuna.

Bestu kveðjur,

Jónína Sif

 

Ixilandia Hrafntinna og Hrafnkatla

Þær eru sprækar systurnar, enda orðnar 6. vikna og trúa því sjálfar að þær séu fullvaxnar og geti allt. En þar fer nærri því þær eru afskaplega duglegar og litlu munar að þær séu orðnar húshreinar. Þær hafa þó ekki áttað sig á að tær eru ekki einhver hræðileg skrímsli sem réttast er að ráðast á við hvert tækifæri.

Rökkurdís sinnir þeim vel og er ennþá stútfull af mjólk, Bosse er hinsvegar ennþá á varðbergi gangvart þeim en er þó duglegur að leika við þær, sérstaklega úti.

En að tilefni ,,afmælisins” tók ég nokkrar myndir og þær eru að finna á myndasíðunni.

aDSC_0460